|
Kirkjuhvoll, saga.
Árið 1923 reis hús í landi Brekkubæjar á mörkum Garða og Skaga sem frá og með þeim tíma skipaði sér sess sem eitt af merkilegri húsum bæjarins. Það voru hjónin séra Þorsteinn Briem og Valgerður Lárusdóttir sem réðust í byggingu þess. Húsið er steinsteypt. Útveggir þess eru samtals 30 sentimetra þykkir og var einangrað á milli þeirra með 15 sentimetra þykku lagi af mómylsnu. Fyrsta og önnur hæð voru ætlaðar til íbúðar en í kjallara var fjós og hlaða þar sem séra Þorsteinn stundaði einhvern búskap.
Kirkjuhvoll, eins og húsið heitir, þjónaði lengst af sem prestsetur fyrir Akranessókn. Séra Þorsteinn Briem bjó í húsinu frá byggingu þess til ársins 1946 , þá bjó séra Jón M. Guðjónsson til ársins 1975 og loks séra Björn Jónsson til ársins 1978
Þegar hlutverki Kirkjuhvols sem prestsetri lauk tók við tímabil þar sem húsið þjónaði sem heimavist Fjölbrautarskóla Vesturlands. Árið 1985 var svo komið að húsið var ekki lengur talið íbúðarhæft og lá beint við að það yrði rifið. Það varð Kirkjuhvoli til bjargar að Sigurður Ragnarsson og Drífa Björnsdóttir keyptu húsið af Akranesbæ og á aðdáunnarverðan hátt endurbyggðu það þvínæst í sinni upprunalegu mynd.
Séra Jón M. Guðjónsson lést árið 1994. Hinsta ósk hans var sú að á Görðum myndi rísa listasafn. Byrjunaráfangi að þeirri draumsýn varð að veruleika er minningarsjóði um séra Jón tókst, með stuðningi Akranesbæjar, að fjármagna kaup á Kirkjuhvoli. Þar hefur nú verið rekið Listasetur síðan í janúar 1995.
Í stjórn minningarsjóðs Sr. Jóns. M. Guðjónssonar eru: Jón Allansson, formaður Guðmundur Páll Jónsson, ritari Ólafur Jónsson, meðstjórnandi Þjóðbjörn Hannesson, meðstjórnandi
Forstöðumaður - Jóhanna L. Jónsdóttir
|
|